Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra mun gegna embætti forsætisráðherra til skamms tíma á morgun.

Í Morgunblaðinu í dag kemur fram að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er nú staddur í Noregi og gegnir Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra embætti forsætisráðherra á meðan. Bjarni fer svo sömuleiðis utan á morgun. Sama dag snýr Sigmundur aftur heim og mun Hanna Birna gegna embætti forsætisráðherra í þær klukkustundir sem báðir formenn stjórnarflokkanna verða utan landsteina.