Haraldur Benediktsson kemut til með að leiða lista Sjálfstæðismanna í Norðvesturkjördæmi í komandi alþingiskosningunum. Þetta er niðurstaða atkvæðagreiðslu í prófkjörinu sem lauk í gærkvöld.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir er í öðru sæti listans, Teitur Björn Einarsson í því þriðja og Hafdís Gunnarsdóttir í fjórða sæti.

Alls greiddu 1.516 atkvæði og voru 55 atkvæði auð og ógild.