Haukur F. Leósson, varaformaður stjórnar Íbúðalánasjóðs, hefur beðist lausnar úr stjórn Íbúðalánasjóðs af persónulegum ástæðum. Margrét Rósa Sigurðardóttir hefur jafnframt beðist lausnar sem varamaður í stjórn Íbúðalánasjóðs, að því er fram kemur í tilkynningu .

Þar segir að félags- og húsnæðismálaráðherra muni skipa nýja aðila í stað þeirra í stjórn sjóðsins eins fljótt og unnt er.