Haukur Örn Birgisson sigraði í kosningu um embætti forseta Golfsambands Íslands sem fram fór í dag. Hann fékk 120 atkvæði en Margeir Vilhjálmsson fékk 29 atkvæði. Eitt atkvæði var autt og eitt ógilt.

Á vef Golfsambands Íslands segir að þetta sé í fyrsta sinn sem kosið er um forseta á Golfþingi GSÍ.