Alls var 555 leigusamningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í október sl., sem er rúmlega 36% fækkun samninga frá því í september þegar 868 samningum var þinglýst en í september var slegið met í fjölda leigusamninga.

Þá fækkaði leigusamningum jafnframt á landinu öllu um tæp 46% á milli mánaða í október samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands.

Fjöldi leigusamninga á höfuðborgarsvæðinu hafði leitað upp á við í haust eftir fækkun í apríl sl. en þeim fækkaði sem fyrr segir gífurlega í október.

Á myndinni hér að ofan sést þróun á fjölda leigusamninga á höfuðborgarsvæðinu sl. 2 ár. Þar sést hvernig leigusamningum fjölgaði jafnt og þétt fram á síðasta haust en frá október í fyrra fór þeim heldur fækkandi fram á sl. vor.

Ef horft er á landið í heild þá var 840 leigusamningum þinglýst á landinu öllu í október sl., samanborið við 1.553 samninga í september, sem þýðir sem fyrr segir tæp 46% aukning á milli mánaða en 2,4% fækkun á milli ára.

Fyrir utan höfuðborgarsvæðið var flestum samningum þinglýst á Suðurnesjum í október, eða 94 samningum. Þá var 77 samningum þinglýst á Norðurlandi, 47 samningum á Suðurlandi og 44 samningum á Vesturlandi.

Sem fyrr var fæstum leigusamningum þinglýst á Vestfjörðum, en aðeins 11 samningum var þinglýst þar í október. Þá hefur aðeins 60 leigusamningum verið þinglýst á Vestfjörðum frá áramótum.

Fyrir utan höfuðborgarsvæðið, þar sem 5.930 samningum hefur verið þinglýst það sem af er ári, hefur flestum samningum verið þinglýst á Suðurnesjum, eða 1.026 samningum. Þá hefur 985 leigusamningum verið þinglýst á Norðurlandi þar sem af er þessu ári.