Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu rúmum 2,2 milljörðum króna í júlí en þar af voru rúmir 2,1 milljarðar króna vegna almennra lána. Til samanburðar námu almenn útlán í júlí 2010 tæpum 1,8 milljörðum króna. Meðalútlán almennra lána voru um 9,9 milljónir króna í júlí sem er svipað og í síðasta mánuði. Heildarfjárhæð almennra lána fyrstu 7 mánuði ársins er samtals um 13,5 milljarðar króna en var um 9,4 milljarðar króna á sama tímabili 2010. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs fyrir júlí.