Bloomberg fréttamiðillinn hefur gert sögu stofnanda Facebook, Mark Zuckerberg, skil í nýjum heimildaþætti. Þáttaröðin kallast Bloomberg Game Changers og fjallar um einstaklinga sem hafa á einn eða annan hátt breytt og haft áhrif á umhverfi sitt.

Saga Zuckerberg er afar umdeild en kvikmynd um hann er væntanleg í kvikmyndahús í vikunni. Zuckerberg er einn yngsti auðkýfingur heims og eins og segir um kvikmyndina The Social Network þá eignast enginn 500 milljón vini án þess að eignast nokkra óvini.

Heimildaþáttur Bloomberg er 25 mínútur að lengd og má sjá hér .