Reiknistofa bankanna hefur gengið frá ráðningu Heimis Björgvinssonar í starf framkvæmdastjóra fjármálasviðs. Heimir hóf störf hjá félaginu um mánaðamótin apríl maí.

Heimir hefur starfað við almenna stjórnun og við fjármálastjórn í hugbúnaðargeiranum um árabil. Hann starfaði tímabundið við fjármálastjórn hjá Advania AS í Noregi 2012 en var þar áður fjármálastjóri HugarAx frá 2008 (nú Advania). Auk þess starfaði Heimir sjálfstætt við ráðgjöf á árunum 2005 til 2007.

Heimir útskrifaðist með MBA frá Háskólanum í Reykjavík vorið 2011 og með BSc gráðu frá Viðskiptaháskólanum á Bifröst 1998. Auk þess stundaði hann nám við Verslunarháskólann í Osló (Oslo Handelshøyskole) á árunum 1990 til 1992.