Aðalfundur Íslandsbanka er í þann mund að hefjast og hefur verið lokað fyrir viðskipti með bréf félagsins. Rétt áður en fundur hófst barst tilkynning um að Helgi Magnússon hafi ákveðið að draga til baka framboð sitt til setu í bankaráði Íslandsbanka hf. fyrir aðalfund félagsins. Sjálfkjörið verður því í bankaráð.