Helgi Magnússon hefur verið kjörinn formaður Samtaka iðnaðarins. Þetta kom fram á Iðnþingi í dag.

Helgi fékk 91% atkvæða í kosningunni en Vilmundur Jósefsson gaf ekki kost á sér áfram sem formaður.

Anna María Jónsdóttir og Ingvar Kristinsson eru nýir meðlimir í stjórn samtakanna en fyrir eru í stjórn þeirra Aðalheiður Héðinsdóttir, Hörður Arnarson, Loftur Árnason og Sigurður Bragi Guðmundsson.