Helgi Már Björgvinsson, sem verið hefur svæðisstjóri Icelandair fyrir Bretland og Írland hefur verið ráðinn  framkvæmdastjóri Markaðs- og sölusviðs Icelandair.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Helgi hóf störf hjá Icelandair árið 1999, fyrst sem yfirmaður Icelandair Holidays og síðar sölustjóri fyrir Bandaríkin og Kanada.

Árið 2002 varð hann sölu- og markaðsstjóri fyrir Bretland og Írland og 2004 svæðisstjóri fyrir Suður-Evrópu.

Helgi hefur verið svæðisstjóri fyrir Bretland og Írland frá 1. maí, 2007.  Helgi er með BS gráðu í markaðs- og stjórnunarfræði frá University of South Carolina, Columbia og er að ljúka MBA námi frá ESCP-EAP European School of Management í París.

Helgi er 37 ára gamall og er kvæntur Mörtu Jónsdóttur, alþjóðastjórnmálafræðingi hjá UNESCO í París.