Dirrindí slf., félag hjónanna Víkings Heiðars Ólafssonar píanóleikara og Höllu Oddnýjar Magnúsdóttur, listræns stjórnanda hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands, hagnaðist um 37 milljónir króna eftir skatta á síðasta ári samkvæmt áætlun Viðskiptablaðsins á afkomu samlags- og sameignarfélaga á síðasta ári.

Skráð starfsemi Dirrindí er á sviði hljóðupptöku og tónlistarútgáfu en áætlaður launakostnaður félags nam 7 milljónum í fyrra.

Dirrind er í í öðru sæti á eftir félaginu ÁKM slf. í eigu hjónanna Bubba Mortens og Hrafnhildar Hafsteinsdóttur yfir mestan hagnað samlags- og sameignarfélaga á sviði lista og fjölmiðlunar á síðasta ári samkvæmt samantektinni.

Meðal annarra félaga sem voru ofarlega í flokki lista og fjölmiðlunar er Doc Media slf., félag Hjörvars Hafliðasonar, sem heldur úti hlaðvarpinu Dr. Football og er yfirmaður íþróttamála hjá Viaplay á Íslandi. Áætlaður hagnaður Doc Media nam 26 milljónum króna eftir skatta og launagreiðslur félagsins um sjö milljónum króna.

Alls nær úttektin sem birtist í Viðskiptablaðinu í dag til yfir 350 afkomuhæstu samlags- og sameignarfélaganna í fyrra flokkað niður í níu atvinnugreinar.

Úttektin byggt á álögðum tekjuskatti og tryggingagjaldi samkvæmt álagningarskrá lögaðila sem Skatturinn birti í síðustu viku.

Taka skal fram að í úttekt Viðskiptablaðsins er ekki tekið tillit til yfirfæranlegs taps frá fyrri árum – sem draga má frá skattstofni – né lægra skatthlutfalli tekna af arðgreiðslum, enda liggja upplýsingar um slíkt ekki fyrir.

Úttekt á afkomu 360 samlags- og sameignarfélaganna má finna í Viðskiptablaðinu sem kom út í dag.