Hlutabréf hafa nú hækkað það sem af er degi í Evrópu eftir að hafa lækkað strax við opnun markaða í morgun. Þannig lækkaði FTSEurofirst vísitalan um 0,1% við opnun en hefur nú hækkað um 0,25%.

Í Lundúnum stendur FTSE 100 vísitalan reyndar í stað eftir að hafa lækkað um 0,15% í morgun. Þá hefur AEX vístalan í Amsterdam hækkað um 0,2%, DAX vísitalan í Frankfurt um 0,3% og CAC 40 vísitalan í París um 0,2%.

Í Kaupmannahöfn hefur OMXC vísitalan hækkað um 0,7% en í Osló hefur OBX vísitalan lækkað um 0,7%.