Hlutabréfavísitölur lækkuðu nokkuð ríflega í viðskiptum dagsins í Bandaríkjunum.

Tækniframleiðendur fóru nokkuð illa út úr deginum. Til að mynda lækkaði Texas Instruments, næststærsti hálfleiðaraframleiðandi Bandarikjanna um 6,3% í viðskiptum dagsins.

Dow Jones lækkaði um 2,5%, S&P 500 lækkaði um 3,1% og Nasdaq um 4,1%.