Hlutabréfamarkaðir hafa hækkað í Evrópu í morgun. FTSE 100 hefur hækkað um 1.21%, þýska hlutabréfavísitalan DAX hefur hækkað um 1.43%, franska vísitalan CAC 40 hefur hækkað um 1.32%, Stoxx Europe 600 um 1.05% og Global Dow um 0.52%.

Hækkanirnar koma í kjölfar endurfjármögnunaraðgerða evrópska seðlabankans sem miða að því að styrkja fjármálakerfi Evrópu.