Hlutabréf hækkuðu um 0,7% í Asíu í dag samkvæmt DJ Asia-Pacific vísitölunni. MarketWatch hefur eftir greinanda hjá Daiwa Securities í Tókýó að hækkun framtíðarsamninga vegna hlutabréfa í Bandaríkjunum bæti stemmninguna á markaðnum og vonir standi til að stjórnvöld í Bandaríkjunum fari hratt út í efnahagsaðgerðir.

Eftir fyrstu viðskipti í Evrópu hafði Euronext 100 vísitalan hækkað um 1,4%. Hækkunin var heldur meiri og kann þetta að stafa af hækkun væntingavísitölunnar, sem vb.is sagði frá fyrr í morgun.