Hlutabréf hækkuðu í Evrópu í dag og hafa að sögn Reuters fréttastofunnar ekki verið hærri í 4 mánuði.

Þannig hækkaði FTSEurofirst 300 vísitalan um 0,9% í dag og hefur ekki verið hærri frá 16. janúar á þessu ári.

Í Lundúnum og í Amsterdam hækkuðu FTSE 100 og AEX vísitölurnar um 1,1%. Þá hækkaði DAX vísitalan í Frankfurt um 1% og CAC 40 vísitalan í París um 1,3%.

Í Kaupmannahöfn hækkaði OMXC vísitalan um 1% og í Osló hækkaði OBX vísitalan um 1,15%.