Úrvalsvísitala kauphallar Nadsaq á Íslandi lækkaði um 0,18% í viðskiptum dagsins. Heildarvelta á mörkuðum nam 6,7 milljörðum, þar af var velta á hlutabréfamarkaði nam 1,4 milljöðrum. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði nam 5,3 milljörðum.

Gengi bréfa í HB Granda hækkuðu um 3,09% í 159,7 milljónum. Einnig hækkaði gengi bréfa Nýherja talsvert eða um 3,12% í 58,9 milljón króna viðskiptum. Gengi bréfa í N1 hækkaði einnig um 0,74% í 209 milljón króna viðskiptum.

Gengi bréfa í Icelandair lækkaði mest eða um 2,05% í 131,4 milljón króna viðskiptum. En einnig lækkaði gengi bréfa í Regni um 1,19% en í talsvert litlum viðskiptum.