Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur lækkað um 1,2% frá því að opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 10:30 í 4.258 stigum.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga en aðeins eitt félag, Föroya banki [ FO-BANK ] hefur hækkað það sem af er degi.

Velta með hlutabréf er 860 milljónir. Þar af eru um 360 milljónir með bréf í Kaupþing [ KAUP ], 200 milljónir með bréf í Landsbankanum [ LAIS ] og 100 milljónir með bréf í Glitni [ GLB ] en nokkuð minni velta er með hlutabréf í öðrum félögum.

Krónan stendur nánast í stað frá opnum gjaldeyrismarkaða og stendur gengisvísitalan í 158,8 stigum. Krónan byrjaði þó á að veikjast um allt að 0,5% en hefur nú gengið til baka.