Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur lækkað um 0,4% frá því opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 10:35 í 4.258 stigum.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir einstakra félaga en aðeins tvö félög hafa hækkað það sem af er degi.

Velta með hlutabréf er lítil eða aðeins um 230 milljónir. Þar af eru tæplega 110 milljónir með bréf í Kaupþing [ KAUP ], um 50 milljónir með bréf í Exista [ EXISTA ] og en minni velta er með bréf í öðrum félögum.

Krónan stendur í stað frá því í morgun og er gengisvísitalan nú 158,9 stig.