Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur lækkað um 1,1% frá því opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 10:45 í 4.182 stigum.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 1% í gær en hóf að lækka strax við opnun markaða í morgun.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga en ekkert félag hefur hækkað í Kauphöllinni í morgun.

Velta með hlutabréf mikil miðað við síðustu daga eða um 2,2 milljarðar. Þar af eru rúmar 638 milljónir með bréf í Alfesca [ A ], um 650 milljónir með bréf í Teymi [ TEYMI ], um 280 milljónir með bréf í Kaupþing [ KAUP ] og tæpar 120 milljónir með bréf í Straum [ STRB ] en minni velta er með bréf í öðrum félögum og engin velta í öðrum.

Krónan hefur veikst um 1% í morgun og er gengisvísitalan nú 160,4 stig.