Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 11% frá því að opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 10:40 í 3.622 stigum, samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 4,8% í gær en tók dýfu strax við opnun markaða í morgun. Þar munar auðvitað mest um gengisfall Glitnis en Fjármálaeftirlitið hefur heimilað viðskipti með félagið á ný. Glitnir hefur lækkað um 61,8% í morgun og er gengið nú 6 á hvern hlut.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga.

Velta með hlutabréf er tæpir 7,8 milljarðar króna og þar af eru um 6,2 milljarðar króna með bréf í Landsbankanum en í morgun fóru fram mikil viðskipti með bréf í félaginu.

Þá er velta fyrir um 1,2 milljarða með bréf í Kaupþingi en nokkuð minni velta er með bréf í öðrum félögum.

Krónan hefur veikst nokkuð það sem af er degi eða um 2,8% og er gengisvísitalan nú 192 stig.