Gífurlegar hækkanir hafa orðið á hlutabréfamarkaði á síðustu mánuðum. Gengi hlutabréfa Icelandair Group hf. hefur til að mynda hækkað um 95,33% á síðastliðnu ári og gengi Haga um 47,87%.

Frá áramótum hefur gengi Regins hækkað um 22,72% og gengi Eimskips um 18,26%.

Félögum á markaði hefur fjölgað töluvert undanfarið. Í vikunni hófust viðskipti með hluti VÍS auk þess sem almennu hlutafjárútboði TM lýkur.

Nánar er stöðuna á hlutabréfamarkaði um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast blaðið hér .