Markaðsvísitala GAMMA hækkaði um 0,1% í desembermánuði og hækkaði samtals um 7,3% á nýliðnu ári.

Hlutabréfavísitala GAMMA  hækkaði um 3,7% í desembermánuði og hækkaði samtals um 32,3% á árinu. Vísitalan endar árið í sínu hæsta gildi frá upphafi.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,7% í desembermánuði og hækkaði samtals um 3% á árinu 2013. Þar af hækkaði Verðtryggði hluti vísitölunnar um 2,1% og Óverðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 5,5% á árinu sem er að líða.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa lækkaði um 0,4% í desembermánuði og hækkaði samtals um 9,8% á árinu 2013.