Hlutafé Bakkavör Group hefur verið aukið um 23.979.203 hluti, í samræmi við 3. gr. samþykkta félagsins, til að efna skuldbindingar félagsins samkvæmt breytanlegum skuldabréfum í eigu Kaupþings banka hf samkvæmt tilkynningu félagsins til Kauphallarinnar.

Heildarfjöldi hluta í Bakkavör Group hf. eftir hækkunina er 2.157.888.219, en aukningin nemur 1,1% af hlutafé félagsins fyrir hækkunina. "Bakkavör Group hefur nú uppfyllt allar skuldbindingar samkvæmt breytanlegum skuldabréfum í félaginu,"segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.