Á hluthafafundi 365 [ 365 ] sem haldinn var í dag voru hluthafar sem fara með 88,5 % atkvæða mættir til fundarins.

Þar var meðal annars samþykkt samhljóða tillaga um að stjórn félagsins verði falið að óska eftir afskráningu hlutabréfa félagsins úr Kauphöllinni.

Þá var einnig samþykkt tillaga um að stjórn félagsins verði falið að kaupa hluti þeirra hluthafa í félaginu er þess óska fyrir kl. 16.00 þann 11. júlí 2008 en greitt verði á kaupverði kr. 1.20 á hvern hlut.

Í framhaldi af því var einnig samþykkt samhljóða tillaga um að stjórn félagsins verði heimilað í tengslum við framangreind kaup á hlutabréfum í 365 að kaupa allt að 15% eigin hluta fyrir kr. 1.20 hvern hlut og skal heimildin gilda til og með 31. júlí 2008.

Þá kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar að verði eigin hlutir í eign félagsins umfram 10% eftir viðskiptin skal stjórn félagsins lækka hlutafé félagsins í samræmi við lög um hlutafélög til að eigin hlutir eftir slíka hlutafjárlækkun verði ekki umfram 10% af hlutafénu.