„Það stendur ekki til að bjóða upp á hestaferðir enda eru hestaleigur þarna víða í kring,“ segir Guðmundur Ólason, sem kenndur hefur verið við fjárfestingarfélagið Milestone. Hann er einn fjárfesta sem undir forystu fjárfestingarsjóðsins Icelandic Tourism Fund 1 (ITF1) hefur keypt jörðina Ingólfshvol í Ölfusi. Fyrirhugað er að halda reglulegar hestasýningar að Ingólfshvoli, byggja þar upp veitingaþjónustu, minjagripasölu og ýmiskonar afþreyingu fyrir ferðamenn. Guðmundur hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri þessa.
Landsbréf reka sjóðinn ITF1 en stærstu fjárfestar þar eru Icelandair Group og Landsbankinn auk nokkurra lífeyrissjóða. Fjárfestahópurinn samanstendur af tæplega tíu aðilum.
Á Ingólfshvoli er ein stærsta reiðhöll landsins auk töluverðs hesthúsapláss og veitingastaðar.
Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu í dag. Áskrifendur geta nálgast blaðið í heild hér að ofan undir liðnum tölublöð.