Á aðalfundi Samorku, sem haldinn var í morgun, var Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, kjörinn nýr inn í stjórn samtakanna. Hörður kemur inn í stjórnina í stað Friðriks Sophussonar, forvera síns hjá Landsvirkjun. Franz Árnason var endurkjörinn formaður til tveggja ára á aðalfundi Samorku 20. febrúar 2009.

Stjórn Samorku verður að öðru leyti óbreytt, en hana skipa því næsta árið:

Franz Árnason, Norðurorku, formaður Hjörleifur B. Kvaran, Orkuveitu Reykjavíkur Hörður Arnarson, Landsvirkjun Júlíus Jónsson, Hitaveitu Suðurnesja Páll Pálsson, Skagafjarðarveitum Tryggvi Þór Haraldsson, Rarik Þórður Guðmundsson, Landsneti   Varamenn: Dagur Jónsson, Vatnsveitu Hafnarfjarðar Guðmundur Davíðsson, Hitaveitu Egilsstaða og Fella Kristján Haraldsson, Orkubúi Vestfjarða

Stjórnin skiptir að öðru leyti með sér verkum á fyrsta fundi eftir aðalfund.