Hrafn Stefánsson hefur tekið við sem framkvæmdastjóri hjá Subway á Íslandi.

Hrafn útskrifaðist með MBA gráðu frá Copenhagen Business School í ágúst. Hann er með BA í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands.

Hrafn er stofnandi auglýsingastofunnar Stefánsson & Stefánsson en þar vann hann frá 2010 til 2012. Þá var hann rekstrarstjóri Dominos á Íslandi frá 2006 til 2008.

Hrafn hóf störf hjá Subway nú í nóvember.