Fyrirtækið Hryðjuverk ehf. hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta. Skiptastjóri er Jón Jónsson hrl. Hryðjuverk ehf. er staðsett á Egilsstöðum.

Hryðjuverk sérhæfði sig í mannvirkjagerð og rekstri vinnuvéla og flutningatækja. Í lok árs 2008 var eigið fé félagsins neikvætt um 50,3 milljónir króna en tap af rekstri það ár var rúmlega 51 milljón króna. Samkvæmt ársreikningi hafði hækkun höfuðstóls gengistryggðra lána mikil áhrif á skuldastöðu félagsins.