Húsnæði Alpan á Eyrarbakka verður á næstu dögum auglýst til sölu og er ásett verð 76 milljónir króna. Sem kunnugt er flytur Alpan á næstunni með rekstur sinn til Rúmeníu og er reiknað með að húsið verði laust til afhendingar í sumar að því er segir á fréttavefnum sudurland.is.

Húsið telur um 1700 fermetra og er byggt á áttunda áratug síðustu aldar.

Það er Fasteignasalan Hóll sem hefur fengið Alpan húsið til sölu og sama fyrirtæki er einnig að undirbúa auglýsingu á 1600 fermetra húsnæði fiskvinnslunnar Portlands í Þorlákshöfn en fyrirtækið er einnig að flytja en þó aðeins innanbæjar. Húsnæði Portlands telur um 1600 fermetra og er ásett verð 120 milljónir.