Húsasmiðjan sendi út fréttatilkynningu sem svar við fréttatilkynningu BYKO í gær þar rætt var um lokun einnar stærstu verslunar fyrirtækisins á höfuðborgarsvæðinu þar sem fullyrt var að það megi rekja til „... yfirtöku lífeyrissjóða á einu þeirra fyrirtækja sem starfrækt er á þessu sviði.“ Í tilkynningur Húsamiðjunnar kemur fram að augljóst sé að þar sé átt við Húsasmiðijuna sem nú er í eigu Framtakssjóðs Íslands. Því vill Húsamiðjan koma eftirfarandi á framfæri:

"Húsasmiðjan hefur frá hruni íslenska bankakerfisins ráðist í gríðarlega umfangsmiklar og sársaukafullar aðgerðir til að bæta reksturinn. Rekstrarkostnaður félagsins hefur dregist saman um 35% og starfsmönnum verið fækkað um allt að 50%. Flestir núverandi starfsmenn, að meðtöldum öllum lykilstjórnendum, hafa tekið á sig launaskerðingu til þess að leggja sitt af mörkum. Þannig hafa starfsmenn og stjórnendur lagt sig fram um að hagræða á öllum sviðum og vænta þeir viðunandi afkomu með auknum hagvexti og framkvæmdum í landinu á komandi tíð."

"Frá því Framtakssjóður Íslands eignaðist Húsasmiðjuna hefur fyrirtækið ekki notið neinnar fjárhagslegrar aðstoðar frá eigendum sínum enda ganga áætlanir út á að fyrirtækið eflist á eigin verðleikum í heilbrigðri samkeppni. Þannig býr Húsasmiðjan við nákvæmlega sömu skilyrði og önnur fyrirtæki landsins en eins og allir vita eru mörg þeirra í gjörgæslu bankanna."


Ítarleg umfjöllun um stöðu Húsasmiðjunnar var í síðasta tölublaði Viðskiptablaðsins. Viðskiptavinir geta nálgast blaðið undir tölublöð.