Við losun Hvassafells – leiguskips Samskipa – í Rotterdam í gær kom í ljós að talsverður sjór hafði komist í eina lest skipsins þar sem m.a. voru gámar sem innihalda efnið „Aluminium Dross“, sem við snertingu við vatn hvarfast og veldur þá hita og jafnvel íkveikju.

Hafnaryfirvöld í Rotterdam tóku strax við stjórn á vettvangi og telja sig hafa fulla stjórn á aðstæðum.

Í frétt frá Samskipum segir að áhöfn Hvassafellsins sé ekki neinni hættu en ekki er vitað á þessari stundu hvað olli því að sjór komst í lest skipsins. Hlutaðeigandi yfirvöld munu sjá um rannsókn málsins.

Unnið er að hreinsun og eyðingu efnanna með yfirvöldum.