Úrvalsvísitalan (OMXI6) lækkaði um 0,1% í dag og stóð við lok markaða í 840 stigum samkvæmt Markaðsvaktinni.

Vísitalan lækkaði um 4,9% á föstudag en byrjaði á því að hækka í morgun og hafði um tíma hækkað um 1,6%. Undir hádegi fór hún þó að lækka aftur.

Gamla Úrvalsvísitalan (OMXI15) hækkaði hins vegar um 0,2% og stendur nú í 284 stigum.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga í Kauphöllinni.

Century Aluminum leiddi lækkanir dagsins og lækkaði um 26% og hefur því lækkað um 41,7% á einni viku. Hins vegar voru sáralítil viðskipti með bréf í félaginu eða tæpar 40 þúsund krónur, þó í fjórum viðskiptum.

Velta með hlutabréf var um 195 milljónir króna en þar af voru um 113,5 milljónir með bréf í Össur.

Þá var velta fyrir tæpar 57,5 milljónir króna með bréf í Straum og rúmar 22 milljónir króna með bréf í Marel en sáralítil velta var með bréf í öðrum félögum.

Velta með skuldabréf nam í dag tæpum 7,8 milljörðum króna.