Úrvalsvísitalan hækkaði um 2,29% í dag og er 5.770,22 stig, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni.

Þetta er fjórði dagurinn í röð sem Úrvalsvísitalan hækkar. Síðustu vikuna hefur hún hækkað um 6,89% en ef miðað er við frá áramótum nemur hækkunin 4,23%.

Greiningardeild Glitnis spáir 20% hækkun vísitölunnar á þessu ári og er viðsnúningurinn á hlutabréfamarkaði í samræmi við þær væntingar.

Actavis Group hækkaði um 4,42%, Flaga Group hækkaði um 3,13%, Kaupþing banki hækkaði um 2,70%, Landsbankinn hækkaði um 2,65% og FL Group hækkaði um 2,51%.

?Líkast til eru fjárfestar farnir að horfa til næstu uppgjöra félaganna en að okkar mati gefur undirliggjandi rekstur félaganna ekki tilefni til annars en bjartsýni um niðurstöður þeirra," segir greiningardeild Glitnis.

Fjögur fyrirtæki lækkuðu við lok markaðar. Atlantic Petroleum lækkaði um 1,18%, Icelandic Group lækkaði um 0,56%, Össur lækkaði um 0,44% og Dagsbrún lækkaði um 0,17%.

?Minni fjárfestar hafi verið mun fyrirferðameiri á markaðnum síðustu mánuði en á liðnu ári. Margir þeirra komu inn á markaðinn með krafti í upphafi árs en hröktust síðan frá honum í lækkunarhrinunni sem hófst í febrúar. Stærri fjárfestar hafa meira haldið að sér höndunum í þessari sveiflu hlutabréfamarkaðarins á árinu," segir greiningardeild Glitnis.

Gengi krónunnar lækkar um 0,04% og gengisvísitalan er 128,81 stig, samkvæmt upplýsingum frá Kaupþingi banka.