Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,7% og er 4.121 stig við lok markaðar. Veltan nemur 923 milljónum króna, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.

Century Aluminum [ CENX ] hækkaði um 8%. Dow Jones fréttaveitan sagði frá því í dag að Dahlman Rose hafi hækkað ráðgjöf sína um félagið til fjárfesta í „kaupa“ úr „halda“.

Norska vísitalan OBX hækkaði um 2%. Danska vísitalan OMXC lækkaði um 0,7% og sænska vísitalan OMXS  lækkaði um 0,7%, samkvæmt upplýsingum frá Euroland.