Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,06% og er 6.299 stig við lok markaðar, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nam 6.129 milljónum króna.

?Mikill áhugi fjárfesta er á hlutabréfum um þessar mundir og hækkaði Úrvalsvísitalan í gær talsvert. [...] Kauptækifæri mynduðust í mörgum félögum við lækkun markaðarins á fyrri hluta árs og er núverandi hækkun að hluta staðfesting á því.

Útboðin í Exista og Marel voru bæði vel heppnuð og hafa félögin hækkað nokkuð frá útboðsgengi. Hlutabréfin sem keypt voru í útboði Marel eru á gjalddaga í dag og má gera ráð fyrir að hluti fjárfesta selji önnur bréf til að fjármagna kaupin í útboðinu. Hlutabréfin sem keypt voru í Exista verða á gjalddaga á föstudag, og má gera ráð fyrir að sú verði einnig raunin á föstudag," segir greiningardeild Glitnis.

FL Group hækkar um 47% frá ágúst

?FL Group hefur leitt hækkanirnar í ágúst og september og á tímabilinu hefur félagið hækkað um 47%. Aukin áhuga á FL Group má rekja til vangaveltna um dulda eign í Icelandair og einnig auknar líkur á að FL Group muni að selja félagið. Þegar áhugi fjárfesta fyrir innlendum hlutabréfum var í lágmarki þóttu líkur á sölu Icelandair litlar en vel heppnuð útboð Marel og Exista hafa breytt miklu þar um. Bankarnir hafa einnig hækkað verulega frá byrjun ágúst ásamt Alfesca og Bakkavör," segir greiningardeildin.

Stærstu einstöku viðskiptin

Stærstu einstöku viðskipti dagsins eru 433,5 milljón króna utanþingsviðskipti með bréf Kaupþings banka á genginu 867. Viðskiptin eru ekki verðmyndandi. Gengi Kaupþings banka er 862 krónur á hlut við lok markaðar og lækkuðu bréfin um 0,58% í dag.

FL Group hækkaði mest

FL Group hækkaði um 3,23%, Actavis Group hækkaði um 2%, Bakkavör Group hækkaði um 1,55%, Icelandic Group hækkaði um 1,31% og Straumur-Burðarás hækkaði um 1,16%.

Dagsbrún lækkaði mest

Dagsbrún lækkaði um 7,39% (lækkunin nemur 18,55% síðustu fjórar vikur og 29% frá áramótum), Marel lækkaði um 3,07%,Flaga Group lækkaði um 1,54%, Avion Group lækkaði um 0,92% og Avion Group um 0,92%.

Gengi krónu veiktist um 0,56% og er gengisvísitalan 123,1 stig við lok markaðar.