Úrvalsvísitalan lækkaði í dag um 0,8% og stóð við lok markaða í 377 stigum samkvæmt Markaðsvaktinni.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 2,1% gær og hefur nú lækkað um 42,2% í vikunni.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga en aðeins tvö félög, Marel og Alfesca hækkuðu í dag.

Exista hélt áfram að lækka og lækkaði um 16,7% í dag og hefur því lækkað um 98,9% í vikunni og 99,75% frá áramótum.

Viðskipti með bréf í Existu og Straum voru heimiluð á ný á þriðjudag eftir tveggja mánaða stöðvun Fjármálaeftirlitsins með bréfin. Straumur lækkaði um 63,3% í vikunni og hefur lækkað um 82,1% frá áramótum.

Heildarvelta með hlutabréf var í dag um 140 milljónir króna en þar af voru rúmar  45 milljónir króna með bréf í Marel.

Þá var velta fyrir rúmar 44 milljónir króna með bréf í Straum og rúmar 39 milljónir króna með bréf í Össur.