Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,17% og er 5.344,37 stig við lok dags, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni.

Alfesca hækkaði um 2,76%, Flaga Group hækkaði um 2,30%, Bakkavör Group hækkaði um 1,59%, Össur hækkaði um 1,40% og Mosaic Fashions hækkaði um 1,31%.

Glitnir lækkaði um 1,19% og Actavis um 0,16%.

Gengi krónu styrktist um 1,12% og gengisvísitalan hennar 130,7 stig, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni.

Sérfræðingar segja ástæðuna geti legið í auknum áhuga á krónunni sem og það að Seðlabankinn hafi ákveðið að hafa auka vaxtaákvörðunardag, þrýsti á gengið. Einnig velta þeir sér fyrir því hvort þetta sé leiðrétting, því að þrátt fyrir 75 punkta stýrivaxtahækkun Seðlabankans þann 6. júlí hafi gengi krónu veikst.