Úrvalsvísitalan hækkaði í dag um 0,1% og stóð við lok markaða í 652 stigum samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 2% á föstudag en lækkaði engu að síður um 1,2% í síðustu viku.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga. Athygli vekur að Atorka hækkaði um 30% í dag en velta með bréf í félaginu var aðeins um 455 þúsund krónur. Félagið bíður afskráningar úr Kauphöllinni.

Velta með hlutabréf var um 16 milljónir krónur en þar af voru um 5 milljónir með bréf í Century Aluminum.

Þá var velta fyrir um 3,7 milljónir með bréf í Össur og tæpar 2 milljónir með bréf í Bakkavör.