Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 1,18% og er 8.136 stig við lok markaðar, samkvæmt upplýsingum frá M5. Veltan nemur 6,7 milljörðum króna.

Atlantic Petroleum hækkaði um 6,87%, Actavis Group hækkaði um 3,9%, FL Group hækkaði um 3,18%, Straumur-Burðarás hækkaði um 1,19% og Landsbankinn hækkaði um 0,94%.

Bakkavör Group lækkaði um 0,43%, Alfesca lækkaði um 0,41% og 365 lækkaði um 0,27%.

Gengi krónu styrktist um 0,7% og er 115,6 stig.