Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,42% í dag og stendur í 5.941,95, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöll Íslands.

SÍF hf. hækkaði um 4,25%, FL Group hf. hækkaði 2,86% en Flaga Group hf. lækkaði um 4,99%.

Íslandsbanki var eini bankinn sem stóð í stað, aðrir lækkuðu lítilsháttar.

Gengi krónunnar gaf eftir um 0,13% og er gengisvísitalan 103,34 stig.