Úrvalsvísitalan hækkar um 0,17% í dag og er 6.592,03 stig.

Vinnslustöðin hækkar mest, eða um 2,56%, Alfesca hækkar um 1,93% og Bakkavör hefur hækkað um 1,5%.

Hampiðjan lækkaði mest, eða um 7,56%. Það voru ekki mikil viðskipti á bak við þá lækkun. Kaupþing lækkaði um 1,15% og Dagsbrún lækkaði um 0,90%.

Gengi krónunnar styrktist um 1,22% í dag og gengisvísitalan er 109,01 stig við lok dags.

Dollar lækkar um 1,04% gagnvart krónu og evran lækkar um 0,91% gagnvart krónu.