Lítil breyting varð á Úrvalsvísitölunni í viðskiptum dagsins og lækkaði vísitalan um 0,47%. Úrvalsvísitalan stóð í 5.574 stigum í lok dagsins.

Aðeins fjögur félög hækkuðu en þau voru Kögun sem hækkaði um 1,35%, FL Group sem hækkaði um 0,55%, Dagsbrún (0,18%) og Marel ( 0,14%)

Flest félög lækkuðu í viðskiptum dagsins. Þar af lækkaði Tryggingamiðstöðin mest eða um 9,3%, Atorka um 1,75%, Straumur-Burðarás um 1,19% og Mosaic um 1,14.

Gengi krónunnar styrktist um 0,59% í dag og stöðvaðist gengisvísitalan í 126,32 stigum.