Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,7% og er 4.798 stig við lok markaðar,samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.

Veltan á hlutabréfamarkaði nam um ellefu milljörðum króna á hlutabréfamarkaði, þar af voru sex stærstu viðskiptin með Glitni og var stærðin frá 429 milljónum króna í 1,7 milljarð.

Bakkavör Group [ BAKK ] hækkaði um 3,6%, Glitnir [ GLB ] hækkaði um 1,5%, Century Aluminium [ CENX ] hækkaði um 1,3%, Marel [ MARL ]  hækkaði um 1,3% og Alfesca [ A ] hækkaði um 0,9%.

Atlantic Petroleum [ FO-ATLA ] lækkaði um 3,5%, Landsbankinn [ LAIS ] lækkaði um 2,6%, Atlantic Airways [ A ] lækkaði um 1,9%, Föroya banki [ FO-BANK ] lækkaði um 1,3% og Icelandair Group [ IG ] lækkaði um 1,2%.