Úrvalsvísitalan (OMXI6) hækkaði um 4,9% í dag og stóð við lok markaða í 606 stigum samkvæmt Markaðsvaktinni.

Vísitalan hækkaði um 1,6% í gær, hélst nokkuð óbreytt fram að hádegi en tók kipp upp á við eftir hádegi og hækkaði jafnt og þétt fram eftir degi.

Gamla Úrvalsvísitalan (OMXI15) hækkaði um 4,25% í dag og stendur nú í 234 stigum.

Á markaðssíðu vb.is má sjá helstu breytingar einstakra félaga í Kauphöllinni en Eimskipafélagið hækkaði um 33,% í dag og leiddi þar með hækkanir. Velta með bréf í félaginu nam þó aðeins um 40 þúsund krónum.

Century Aluminum leiddi hækkanir dagsins en félagið hækkaði um 14,1% og hefur þá hækkað um 13,3% í vikunni.

Þá hækkaði Atlantic Airways um 12,8% og Össur rauk upp eftir hádegi og hækkaði um 9,6%.

Bakkavör og Marel voru einu félögin sem lækkuðu, bæði um tæp 0,7%.

Velta með hlutabréf var nokkuð meiri en síðustu daga en þó ekki nema um 200 milljónir króna en þar af voru tæpar 105 milljónir með bréf í Marel.

Þá var velta fyrir rúmar 87 milljónir króna með bréf í Össur en mun minni velta var með bréf í öðrum félögum.

Velta með skuldabréf var þó töluverð í dag og nam rúmum 12 milljörðum króna.