Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,3% frá því að opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni kl. 10 í morgun og stendur nú í 4.822 stigum.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga en aðeins tvö félög hafa lækkað í morgun.

Velta með hlutabréf er aðeins um 370 milljónir en þar af eru tæplega 110 milljónir með bréf í Kaupþing.

Krónan stendur svo að segja í stað frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun.