Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,3% í vikunni og er 159,6 stig við vikulok, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.

Föroya banki [ FO-BANK ] leiðir hækkanirnar í vikunni, fór upp um 4,3%, líkt og sjá má  í meðfylgjandi töflu.

Aftur á móti eru lækkanir fyrirferðameiri í vikunni. Teymi [ TEYMI ]  til að mynda féll um 21% án þess að neinar fréttir bærust frá félaginu. Aftur á móti hafa sérfræðingar bent á að reksturinn standi ekki undir vaxtabyrðinni sem hvíli á félaginu.