Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 349,4 stig í september 2008 og lækkaði um 0,2% frá fyrra mánuði samkvæmt upplýsingum frá Fasteignamati ríkisins (FMR).

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun vísitölu íbúðaverðs síðastliðin þrjú ár.

Íbúðaverð fór lækkandi í apríl og fram eftir vori en í júlí hækkaði það á ný en hefur engu að síður lækkað lítillega síðustu tvo mánuði.

Þó hefur vísitalan íbúðaverð hækkað um 0,3% síðastliðna þrjá mánuði.

Síðastliðna 6 mánuði hefur vísitalan lækkað um 0,9% en hækkun síðastliðna 12 mánuði var 0,6% samkvæmt FMR.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.