Söluverð 100 fermetra íbúða í sex póstnúmerum í Reykjavík hefur hækkað um 2,4 til 4,1 milljón króna að meðaltali frá öðrum ársfjórðungi 2014 og fram á mitt þetta ár. Þetta kemur fram í útreikningum Þjóðskrár Íslands sem gerðir voru að beiðni Morgunblaðsins .

Þar er greint frá því að söluverð íbúða í 101 Reykjavík hafi hækkað um 150 þúsund krónur á fermetrann frá fyrsta ársfjórðungi 2010. Þannig hafi verið á dæmigerðri 100 fermetra íbúð hækkað um 15 milljónir króna á tímabilinu, en með tilliti til verðbólgu er raunhækkunin um 10 milljónir.

Söluverðið á öðrum ársfjórðungi í ár var hæst í miðborginni eða rúmlega 400 þúsund krónur á fermetra.